Viðskipti innlent

Selma nýr for­maður Kvenna í orku­málum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Selma tekur við af Hildi.
Selma tekur við af Hildi. Aðsend

Selma Svavarsdóttir, forstöðumaður hjá Landsvirkjun, var kjörin formaður stjórnar Kvenna í orkumálum (KÍO) á aðalfundi félagsins þann 22. apríl. Selma tekur við af Hildi Harðardóttur.

„Orku- og loftslagsmálin eru mál málanna núna. Það er ákaflega mikilvægt að efla hlut kvenna í orkugeiranum og tengslin þeirra á milli. Þótt margt hafi breyst til hins betra undanfarin ár er aðkallandi að grípa þau fjölmörgu tækifæri sem blasa við til að jafna hlut kynja og auka fjölbreytileikann. KÍO getur þannig gegnt lykilhlutverki í að auka bæði áhrif og sýnileika kvenna í þessum spennandi geira,“ segir Selma í tilkynningu um formannsskiptin.

Þar kemur einnig fram að Ásgerður Sigurðardóttir sérfræðingur hjá Landsvirkjun og Silja Rán Steinberg Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri RARIK hafi verið endurkjörnar í stjórn til næstu tveggja ára.

Fjórar nýjar í stjórn

Fjórir nýir meðstjórnendur voru kjörnir en það eru þær Ása Björk Jónsdóttir leiðtogi hjá Orkuveitunni, Marta Rós Karlsdóttir framkvæmdastýra Baseload Power á Íslandi, Rauan Meirbekova verkefnastjóri hjá Tæknisetri og Valdís Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá HS Orku.

Í varastjórn voru kjörnar þær Elísabet Ýr Sveinsdóttir framkvæmdastjóri hjá RARIK, Heiða Halldórsdóttir framkvæmdastjóri og Helga Kristín Jóhannsdóttir viðskiptaþróunarstjóri hjá Orku náttúrunnar.

„Eins og vitur kona sagði þá er jafnrétti ekki trúarbrögð. Það þarf að vinna að jafnréttismálum, inngildingu og fjölbreytileika með virkum hætti í daglegri starfsemi en það getur krafist hugrekkis. Ég tel að KÍO sé innblástur hugrekkis og með þessar flottu stjórnarkonur í framlínunni þá trúi ég að öflugt starf sé framundan hjá félaginu,“ segir Hildur Harðardóttir, fráfarandi formaður.

Hlutverk KÍO er að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengsl þeirra og auka áhrif innan orku- og veitugeirans. Félagið er opið öllum þeim sem vilja stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika í atvinnugreininni og sýna það í verki. Nánar á www.kio.is





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×